Ég var að vinna alla helgina eins og venjuleg.
Á Laugardeginum frá 10-14:30, það var geðveiki að gera!
Svo fór ég með mömmu og pabba í heimsókn til ömmu, loksins!!! Ég
var örugglega ekki búin að hitta hana í ár. Allavegana ekkert
þennan vetur.
Svo var ég að vinna í Hagkaup á Sunnudeginum til 18:00
Ég og Leó fórum svo og heimsóttum Pétur og Siggu á Sunnudagskvöldið
og vorum þar alla nóttina að horfa á óskarinn, með snakki, nammi og
gosi.
Svo er hann Leó minn að taka upp fyrir tónlistarmyndband, sem er
verkefni í skólanum, búin að vera á nesjavöllum, bláfjöllum,
reykjanesvita og krísuvík að taka upp.
Svo fékk ég þá flugu í hausinn að sauma út áklæðið á rococo
settið okkar með fallegum rósum, krosssaum.

Maður er nottla ekki
alveg í lagi.
Og það stefnir allt í það að við Leó verðum kannski komin í nýtt
húsnæði um næstu mánaðarmót, eða við vonum það allavegana.
Hún Begga afa systir ætlar að fara að hafa samband við okkur svo
við getum eithvað talað betur saman um þessi húsnæðismál. Það yrði
alger draumur.
Mér var litið í Dv um helgina í vinnuni , Hagkaup, Þar sem það er
frítt að lesa það þar, les annars ekki þetta sora blað.
Haldið þið að hann fyrverandi bekkjabróðir minn úr grunnskólanum
hafi ekki bara verið á heilsíðu....
Var verið að dæma í einhverju máli hjá honum þar sem hann hafði
skorið einhvern dyravörð við hálsinn og skorið í sundur slagæð og
stórslasað hann.
Þetta er nú alveg rosalega sorglegt að lesa svona og heyra það í
hvaða vitleisu bekkjarfélagar manns eru komnir í. Einn á leið í
fangelsi, annar droppar úr MR á eignast krakka og sá þriðji ,,tekur
sér frí" og fer í fiskinn.
Þetta er ekki nógu gott. Ég held að restin sé í skóla, veit
allavegana ekki betur og ég ætla rétt að vona að þau haldist þar
eithvað áfram allavegana, það gengur nú ekki annað.
En nóg af blaðri í byli.